Meginreglur um áfrýjanir og kærur til Landsréttar

 


Sakamál - Áfrýjanir

Um áfrýjanir sakamála til Landsréttar fer skv. XXXI. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (sml.), sbr. lög nr. 49/2016.

Ákærði getur áfrýjað dómi í opinberu máli til Landsréttar innan fjögurra vikna (28 daga) frá því héraðsdómur er birtur fyrir honum. Verður ákærði þá að tilkynna áfrýjun bréflega til ríkissaksóknara. Í tilkynningunni skal tekið nákvæmlega fram í hverju skyni áfrýjað er, sbr. 2. mgr. 199. gr. sml. Ríkissaksóknari getur áfrýjað héraðsdómi innan fjögurra vikna (28 daga) frá uppkvaðningu hans. (3. mgr. 199. gr. sml.)

Dómi verður áfrýjað til að fá: a. endurskoðun á ákvörðun viðurlaga, b. endurskoðun á niðurstöðum sem eru byggðar á skýringu eða beitingu réttarreglna, c. endurskoðun á niðurstöðum sem eru byggðar á mati á sönnunargildi gagna eða munnlegs framburðar fyrir héraðsdómi, d. ómerkingu á héraðsdómi og heimvísun máls, e. frávísun máls frá héraðsdómi.

Sakamáli verður áfrýjað án leyfis Landsréttar ef ákærði hefur sótt þing í héraði og verið: 1. dæmdur til skilorðsbundinnar eða óskilorðsbundinnar refsivistar, 2. dæmdur til greiðslu sektar eða eignaupptöku að fjárhæð 1.000.000 króna eða meira. 3. sýknaður af kröfum ákæruvalds. Áfrýjun í slíku tilviki tekur til ákæruvalds.


Sakamál – Kærur

Um kærur á dómsúrlausnum héraðsdóms til Landsréttar fer skv. XXX. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008 (sml.), sbr. lög nr. 49/2016.

Ákvarðanir og úrskurðir dómara sæta kæru til Landsréttar innan þriggja sólarhringa frá því kærandi fékk vitneskju um þá úrlausn sem hann vill kæra.

Þeir úrskurðir héraðsdómara sem tilgreindir eru í stafliðum a - y í 1. mgr. 192. gr. sml. sæta kæru til Landsréttar. Eftir að aðalmeðferð máls er hafin verður úrskurði eða ákvörðun héraðsdómara ekki skotið til æðra dóms, nema úrlausnin sé um atriði, sem greinir í a- til d-liðum 2. mgr. 192. gr. sml.

Héraðsdómari sendir svo fljótt er verða má Landsrétti kæruna ásamt endurritum þinghalda og öðrum gögnum málsins í fjórriti.

Aðilar kærumáls geta sent Landsrétti greinargerðir sínar innan eins sólarhrings frá því kæra berst réttinum. (3. mgr. 194. gr. sml.)

Kæra frestar frekari framkvæmd á grundvelli úrskurðar þar til leyst verður úr máli fyrir æðra dómi, nema um sé að ræða þvingunaraðgerðir skv. IX., X., XI., XII. og XIV. kafla sml. eða ef dómari telur sérstaka ástæðu til að ætla að framkvæmdin geti ekki beðið niðurstöðu Landsréttar. (4. mgr. 193. gr. sml.)


Einkamál – Áfrýjanir

Um áfrýjanir einkamála til Landsréttar fer skv. lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991 (eml.), sbr. lög nr. 49/2016.

Dómi í einkamáli verður áfrýjað til Landsréttar innan fjögurra vikna (28 daga) frá uppkvaðningu hans í héraði. (1. mgr. 153. gr. eml., sbr. 18. gr. laga nr. 49/2016)

Landsréttur getur orðið við umsókn um leyfi til að áfrýja dómi næstu fjórar vikur eftir lok áfrýjunarfrests. Um skilyrði fer skv. a- til c-liðum 4. mgr. 152. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016.

Varði mál fjárkröfu er skilyrði áfrýjunar að fjárhæð nemi 1.000.000 króna. Skal ákveða fjárhæð eftir höfuðstól kröfu í áfrýjunarstefnu. Ekki er tekið tillit til vaxta, málskostnaðar og þess háttar. Séu kröfur fleiri en ein skal leggja þær saman. (1. og 2. mgr. 152. gr. eml., sbr. 17. gr. laga nr. 49/2016)

Varði mál annars konar kröfu en fjárkröfu ákveður Landsréttur hvort hagsmunir svari til áfrýjunarfjárhæðar. (3. mgr. 152. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016)

Nái krafa eða hagsmunir ekki áfrýjunarfjárhæð getur Landsréttur orðið við umsókn um áfrýjunarleyfi. Um skilyrði þess hvort leyfi verði veitt fer skv. a- til c-liðum 4. mgr. 152. gr. eml., sbr. 17. gr. laga nr. 49/2016. Fyrir áfrýjunarleyfi skal greiða 50.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs, sbr. 7. gr. laga nr. 117/2016.

Sá er hyggst áfrýja héraðsdómi skal leggja fyrir Landsrétt áfrýjunarstefnu í tveimur eintökum, ásamt héraðsdómi. (1. mgr. 155. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016) Landsréttur heldur tveimur eintökum stefnunnar, en áfrýjandi fær frumrit afhent. Þetta á jafnframt við þótt áfrýjandi hyggist óska eftir leyfi Landsréttar til að áfrýja héraðsdómi beint til Landsréttar, sbr. 175. gr. eml., sbr. 29. gr. laga nr. 49/2016.

Fyrir útgáfu áfrýjunarstefnu skal skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991, sbr. 7. gr. laga nr. 117/2016, greiða 25.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð allt að 3.000.000 króna, 50.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 3.000.000 króna að 30.000.000 króna og vegna mála þar sem krafist er viðurkenningar á réttindum og/eða skyldum, 130.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 30.000.000 króna að 90.000.000 króna, 200.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 90.000.000 króna að 150.000.000 króna og 300.000 krónur af áfrýjunarfjárhæð frá 150.000.000 króna og fjárhæðum umfram það.

Í áfrýjunarstefnu skal Landsréttur tiltaka hvenær stefndi skuli í síðasta lagi tilkynna Landsrétti að hann hafi í hyggju að halda uppi vörnum í málinu. (f-liður 1. mgr. 155. gr. eml., sbr. 19. gr. laga nr. 49/2016) Áfrýjunarstefnu verður að birta ekki síðar en viku áður en sá frestur stefnda er á enda. (5. mgr. 155. gr. eml., sbr. lög nr. 49/2016)

Áfrýjandi skal þingfesta mál fyrir Landsrétti í síðasta lagi á sama degi og tilgreindur hefur verið fyrir stefnda til að tilkynna um varnir. (1. mgr. 156. gr. eml., sbr. 20. gr. laga nr. 49/2016) Frestur til þingfestingar er að jafnaði ákveðinn sex vikur frá útgáfu stefnu, nema sérstaklega standi á. Við þingfestingu skal áfrýjandi afhenda áfrýjunarstefnuna ásamt sönnun fyrir birtingu hennar, greinargerð af sinni hálfu og málsgögn í fimm eintökum. Um frágang málsgagna fer samkvæmt reglum Landsréttar um málsgögn.

Við þingfestingu skal áfrýjandi greiða þingfestingargjald, 25.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991, sbr. 7. gr. laga nr. 117/2016.

Þegar mál hefur verið þingfest af hálfu áfrýjanda er stefnda veittur frestur til að skila greinargerð af sinni hálfu ef hann hefur tilkynnt að hann hafi í hyggju að halda uppi vörnum. Er sá frestur að jafnaði fjórar vikur. Innan sama frests getur stefndi gagnáfrýjað héraðsdómi, en það verður hann að gera ef hann ætlar að leita breytinga á niðurstöðum dómsins. Um leið sendir Landsréttur stefnda eintak af málsgögnum áfrýjanda. (1. mgr. 158. gr. eml. sbr. 21. gr. laga nr. 49/2016) Hafi stefndi ekki tilkynnt Landsrétti að hann vilji halda uppi vörnum í málinu verður það þegar tekið til dóms án munnlegs málflutnings, en líta verður svo á að stefndi krefjist staðfestingar héraðsdóms. (3. mgr. 158. gr. eml. sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016)

Hafi málsaðilar ekki þegar lýst gagnaöflun lokið í greinargerðum sínum, ákveður Landsréttur sameiginlegan frest handa þeim til að ljúka gagnaöflun í málinu og er sá frestur að jafnaði þrjár vikur. (1. mgr. 160. gr. eml., sbr. 23. gr. laga nr. 49/2016)

Þegar gagnaöflun er lokið er máli frestað til málflutnings með tilkynningu réttarins þar um. (1. mgr. 161. gr. eml. sbr. 24. gr. laga nr. 49/2016)


Einkamál ― Kærur

Dómsathöfn verður kærð til Landsréttar áður en tvær vikur eru liðnar frá uppkvaðningu úrskurðar og ber að afhenda héraðsdómara skriflega kæru innan þess tímamarks. Ef aðili eða umboðsmaður hans er ekki viðstaddur á dómþingi þegar úrskurður er kveðinn upp er kærufrestur hans tvær vikur frá því að hann fékk vitneskju um úrskurðinn. (1. mgr. 144. gr. eml.)

Fyrir kæru til Landsréttar skal greiða héraðsdómi 50.000 krónur skv. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991, sbr. 7. gr. laga nr. 117/2016.

Úrskurðir héraðsdómara sæta aðeins kæru til Landsréttar ef þeir fjalla um efnisatriði sem eru talin upp í a- til r-liðum 1. mgr. 143. gr. eml. Eftir að aðalmeðferð máls er hafin verður úrskurði héraðsdómara ekki skotið til æðra dóms, nema hann sé um atriði samkvæmt a- til f-liðum 2. mgr. 143. gr. eml.

Héraðsdómari sendir kæruna til Landsréttar og gagnaðila þess sem kærir svo fljótt sem verða má nema hann kjósi sjálfur að fella kærðan úrskurð úr gildi. (1. mgr. 147. gr. eml.)

Sá sem kærir úrskurð eða dómsathöfn skal senda Landsrétti, innan tveggja vikna frá því að kæra hans barst héraðsdómi, þau gögn málsins í fjórriti sem hann telur sérstaklega þörf á til úrlausnar um kæruefnið. Hann skal þá einnig, ef hann kýs, afhenda Landsrétti skriflega greinargerð sem geymi kröfur hans og málsástæður sem byggt er á. Hann skal samtímis afhenda gagnaðila eitt eintak kærumálsgagna og greinargerðar. Gögnum skal fylgja skrá um þau og skulu þau vera í því horfi sem Landsréttur mælir fyrir um. (3. mgr. 147. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016)

Sóknaraðili ber ábyrgð á því að kærumálsgögn séu í þeim búningi sem mælt er fyrir um í reglum um kærumálsgögn í einkamálum sem birtar eru á heimasíðu réttarins.

Ef sá sem kærir úrskurð eða dómsathöfn skilar ekki greinargerð, ef því er að skipta, og kærumálsgögn berast ekki Landsrétti innan þess frests sem greinir í 3. mgr. 147. gr. eml. verður ekki frekar af máli. (4. mgr. 147. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016)

Þegar sá sem kærir úrskurð eða dómsathöfn hefur afhent Landsrétti málsgögn á gagnaðili málsins kost á að skila innan viku til Landsréttar skriflegri greinargerð sem geymir kröfur hans og málsástæður sem byggt er á. Telji hann skorta á að kærandi hafi afhent Landsrétti þau gögn máls sem þörf sé á til að leysa úr kæruefninu getur hann látið fylgja greinargerð sinni þau málsgögn sem hann telur vanta. Kjósi gagnaðili að afhenda gögn af sinni hálfu skal það gert í því horfi sem Landsréttur mælir fyrir um. (148. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016)

Þegar vika er liðin frá því að kærumálsgögn bárust Landsrétti getur rétturinn lagt dóm á kæruefnið, en jafnan skal þó athuga skjöl sem berast síðar frá aðilum svo framarlega sem málinu er þá ekki lokið. (1. mgr. 149. gr. eml., sbr. 12. gr. laga nr. 49/2016)

Kæra frestar frekari framkvæmd á grundvelli úrskurðar þar til leyst verður úr máli fyrir æðri dómi. (3. mgr. 144. gr. eml.)